Eftirmeðferð húðflúra / Tattoo aftercare

Húðflúrið tekur allt að 14 daga að gróa. Á þeim tíma skal notast við eftirfarandi leiðbeiningar:
Tattoo can take up to 14 days to heal. At that time follow the instruction below.

1. Takið umbúðir af eftir 6-12 tíma og þrífið vel en varlega með vatni og mildri sápu. Þerrið varlega með hreinu handklæði eftir á.
1. Take the clean film off after 6-12 hours and clean it gently with warm water and mild soap. Then dry it carefully with clean towel.

2. Notið hvítan kremáburð, t.d. Helosan. Varist áburði með Aloe vera eða vaselíni (petroleum jelly) í. Áburðinn skal bera á mjög þunnt 1-2 á dag en ekki strax eftir sturtu.
2. Use white cream, for example Helosan. Avoid creams which contains Aloe Vera or petroleum jelly. Put the cream on your tattoo 1-2 times daily - very thin layer! But not right after you take a shower.

3. Alls ekki kroppa, klóra eða nudda hrúður af flúrinu!
3. Do not scratch or rub the scap off your tattoo!

4. Varist heitt bað, gufubað, sund, sjó og Bláa Lónið fyrstu vikurnar... En endilega farið í sturtu.
4. Avoid hot baths, sauna, swimming pools, sea and Blue Lagoon the first few weeks. But please, take a shower.

5. Varist sól á flúrið í 2-4 vikur.
5. Avoid direct sunlight on your tattoo for 2-4 weeks.

6. Hafðu samband ef einhverjar spurningar koma upp.
6. Please contact us if you have any questions.

Eftirmeðferð húðgata

1. Byrjaðu á að þvo þér um hendurnar - ALDREI meðhöndla nýtt gat og svæðið í kring með óhreinum höndum.

2. Hreinsaðu gatið varlega með volgu vatni (soðnu) og þerraðu vel á eftir. Spreyjaðu síðan EasyPiercing
saltvatnslausn á gatið 2 sinnum á dag. - Getur líka notað heimatilbúnu saltvatnsblönduna í staðinn fyrir spreyið. (leiðbeiningar eru hér vinstra megin undir "Piercing" og þar inn af undir "Aftercare and healing period)

3. Forðastu bað, sund, gufubað og ljósabekki fyrstu 3-4 vikurnar... En endilega
farðu í sturtu. Bláa Lónið er í lagi og gerir jafnvel bara góða hluti fyrir nýja gatið.

4. Notaðu milda sápu (Neutral t.d.) í sturtu. Settu dropa af sápu á gatið og láttu liggja
á í nokkrar sek. - Passaðu bara að skola sápuna vel af í lokin.

5. Passaðu vel upp á allt hreinlæti og ekki skipta of fljótt um pinna. Athugaðu 1 sinni á dag með hreinum
höndum hvort kúlan sé ekki nægjanlega föst á.

English version can be found in the "Piercing" button here on the left

Eftirmeðferð munngata

1. Byrjaðu á því að bursta tennurnar og skola munninn vel með vatni á eftir. Gott er að kaupa nýjan tannbursta þegar þú færð þér gatið.

2. Skolaðu síðan munninn með munnskoli 2-3 sinnum á dag í 30-60 sekúndur í senn.
Við mælum með EasyPiercing munnskolinu sem þú færð hjá okkur eða Listerine sem fæst í næsta apóteki. Afþví það er alkóhól í Listerine þá er gott að blanda það 50% á móti vatni.

3. Skolaðu munninn með vatni eftir hverja máltíð / drykki og reykingar.

4. Gott er að taka inn Íbúfen við bólgu og verkjum. Mikilvægt er að fylgja nákvæmlega
leiðbeiningum sem því fylgja. Einnig er gott ráð að láta klaka bráðna í munninum.

5. Varastu að leika þér að lokknum, hann getur valdið tannskemmdum.
Forðastu einnig áfengi, eiturlyf og tungukossa fyrstu vikurnar á meðan gatið er að gróa.

6. Ekki skipta of fljótt um pinna! Miðað er við 4-6 vikur varðandi gat í tungu og 8-10 vikur varðandi gat í vör.
Það er algjör skylda að skipta yfir í minni pinna í tungunni þegar bólgan er farin til að verjast góm og/eða tannskemmdum þótt að langi lokkurinn sem er settur til að byrja með gæti verið þægilegur!
Athugaðu 1 sinni á dag með hreinum höndum hvort kúlan sé ekki nægjanlega föst á.

Hafðu samband ef þú hefur einhverjar frekari spurningar.

English version can be found in the "Piercing" button here on the left


Vefumsjónarkerfi frá Veflist