English version at the bottom of the page

Eftirmeðferð húðgata

1. Byrjaðu á að þvo þér um hendurnar - ALDREI meðhöndla nýtt gat og svæðið í kring með óhreinum höndum.

2. Hreinsaðu gatið varlega með volgu vatni (soðnu) og þerraðu vel en varlega á eftir. Spreyjaðu síðan EasyPiercing
saltvatnslausn á gatið 2 sinnum á dag. - Getur líka notað heimatilbúnu saltvatnsblönduna í staðinn fyrir spreyið. (leiðbeiningar hér neðar á síðunni)

3. Forðastu bað, sund, gufubað og ljósabekki fyrstu 3-4 vikurnar... En endilega
farðu í sturtu. Bláa Lónið er í lagi og gerir jafnvel bara góða hluti fyrir nýja gatið.

4. Notaðu milda sápu (T.d. Neutral) í sturtu. Settu dropa af sápu á gatið og láttu liggja
á í nokkrar sek. - Passaðu bara að skola sápuna vel af í lokin.

5. Passaðu vel upp á allt hreinlæti og ekki skipta of fljótt um pinna. Athugaðu 1 sinni á dag með hreinum
höndum hvort kúlan sé ekki nægjanlega föst á.

Nánari leiðbeiningar færðu hjá mér áður en þú labbar út frá mér með nýja gatið þitt :)

Eftirmeðferð munngata

1. Byrjaðu á því að bursta tennurnar og skola munninn vel með vatni á eftir. Gott er að kaupa nýjan tannbursta þegar þú færð þér gatið.

2. Skolaðu síðan munninn með munnskoli 2-3 sinnum á dag í 30-60 sekúndur í senn.
Við mælum með EasyPiercing munnskolinu sem þú færð hjá okkur eða Listerine sem fæst í næsta apóteki. Afþví það er alkóhól í Listerine þá er gott að blanda það 50% á móti vatni.

3. Skolaðu munninn með vatni eftir hverja máltíð / drykki og reykingar.

4. Gott er að taka inn Íbúfen við bólgu og verkjum. Mikilvægt er að fylgja nákvæmlega
leiðbeiningum sem því fylgja. Einnig er gott ráð að láta klaka bráðna í munninum.

5. Varastu að leika þér að lokknum, hann getur valdið tannskemmdum.
Forðastu einnig áfengi, eiturlyf og tungukossa fyrstu vikurnar á meðan gatið er að gróa.

6. Ekki skipta of fljótt um pinna! Miðað er við 4-6 vikur varðandi gat í tungu og 8-10 vikur varðandi gat í vör.
Það er algjör skylda að skipta yfir í minni pinna í tungunni þegar bólgan er farin til að verjast góm og/eða tannskemmdum þótt að langi lokkurinn sem er settur til að byrja með gæti verið þægilegur!
Athugaðu 1 sinni á dag með hreinum höndum hvort kúlan sé ekki nægjanlega föst á.

Nánari leiðbeiningar færðu hjá mér áður en þú labbar út frá mér með nýja gatið þitt :)

Hafðu samband ef þú hefur einhverjar frekari spurningar.

 

Heimatilbúin saltvatnslausn

Þessi blanda virkar vel til að hreinsa nýja gatið þitt en er einnig töfralausn á göt sem eru erfið að gróa; á vægar sýkingar, staði þar sem erfitt getur verið að hreinsa o.fl.

1. Settu 1/4 tsk af sjávarsalti í 250 ml soðið vatn (soðið í potti eða hitakatli)
2. Láttu saltið leysast upp í vatninu og notaðu síðan blönduna eins heita og þú þolir
3. Settu blönduna í staupglas eða annað sambærilegt og haltu því upp að gatinu í 5-10 mínútur, 1-2x á dag - Það er líka hægt að bleyta hreina grisju og halda henni upp að gatinu.

**Ef að þú byrjar að þorna mikið í kringum gatið, minnkaðu þá saltmagnið í blöndunni örlítið.



Smellið á myndina hér fyrir neðan til að fá upplýsingar
um Easypiercing vörurnar

 

Tíminn sem tekur fyrir göt að gróa
Healing Period 
(Viðmið)

Eyrnasnepill / Lobe - 6-8 vikur
Eyrnabrjósk / Ear cartilage - 4-12 mánuðir (fer eftir staðsetningu gatsins í eyranu)

Augabrún / Eyebrow - 6-8 vikur
Nasavængur / Nostril - 2-4 mánuðir
Miðnes / Septum - 6-8 mánuðir
Vör / Lip - 8-10 vikur
Tunga / Tounge - 4-6 vikur

Geirvarta / Nipple - 3-6 mánuðir
Nafli / Navel - 6-12 mánuðir
Kynfæragöt kvk / Female genitals - 4-10 vikur

 

Piercing aftercare (other than mouth piercings)

1. First of all, wash your hands - NEVER touch a new piercing or the area around it with dirty hands!

2. Clean the piercing with warm, boiled water and then dry it using a clean wipe. Then spray some EasyPiercing
Salt solution on the piercing 2 times a day. - You can also use homemade salt solution instead of the EasyPiercing salt solution. (instructions on this page)

3. Avoid bath, swimmingpools, sauna ans solarium the first 3-4 weeks ... But do
use the shower :) The Blue Lagoon is ok and it can also be good for your piercing.

4. Use a little bit of mild soap in the shower (Neutral for example). Just be sure to clean
all the soap away when you're done.

5. Be sure that your piercing is always clean and try to keep it dry all the time.
Do not change the jewelry too soon.
Also check once a day if the ball is well fastened on the jewelry.

You will have more detailed cleaning instructions before you walk out of our shop with your new piercing :)

Mouth Piercing Aftercare

1. First of all, brush your teeth og rinse your mouth afterwards - It's good to buy a new toothbrush
when you get the piercing.

2. Rinse your mouth with mouthwash 2-3 times a day for 30-60 seconds.
We recommend EasyPiercing mouthwash or Listerine which you can buy in the next Pharmacy. Because Listerine contains alcohol, mix it 50/50 with water.

3. Rinse your mouth with water after every meal /drink and cigarettes.

4. It's good to take painkillers because of the swelling and pain the piercing can cause. Ibuprofen is
good but be sure to follow the instruction well on how to use it. Also it's good to let ice melt in your mouth.

5. Avoid playing with the jewelry, it can cause teeth and gum damage. Also avoid alcohol, drugs and "french kissing"
for the first few weeks when the piercing is still healing.

6. Don't change the jewelry too soon. Though, it's really important you switch to a smaller barbell in your toungepiercing when the swelling has gone to avoid gum or/and teeth damage - though the long barbell may feel comfortable!
Also check once a day if the ball is well fastened on the jewelry.

You will have more detailed cleaning instructions before you walk out of our shop with your new piercing :)

If you have any other questions you are welcome to contact me
552-7913 / misstattooine@gmail.com

Homemade salt solution

This solution works well to clean your new piercing and is excellent on piercings that are having problems to heal properly, minor infections and on places that are hard to clean because of placements ect.

1. Mix 1/4 tsp of seasalt in 250 ml of boiling water.
2. Use the solution as hot as you can handle.
3. Put the solution in a shot glass or other glass or bowl and hold it to the piercing for 5-10 minutes, 1-2 times a day. - You can also wet some sterile gauzes and put it on the piercing.


Vefumsjónarkerfi frá Veflist